Dagur 1 fimmtudagur 10/17 júlí mæting klukkan 08:00 á BSÍ brottför þaðan klukkan 08:30. Komið í Landmannalaugar klukkan 12:30. Leggjum af stað klukkan 13:00 og gangan tekur 4 til 5 tíma. Komum í Hrafntinnusker klukkan 18:00. Tjöldum og borðum kvöldmat. Ákv það á staðnum hvort við viljum fara í göngu að Íshellunum 1,5 km. Stutt kvöldvaka og svefn klukkan 23:00.
Upplýsingar frá Ferðafélagi Íslands um gönguleiðina: 1. áfangi: Landmannalaugar - Hrafntinnusker (Höskuldsskáli)?Vegalengd 12 km?Áætlaður göngutími 4-5 klst?Lóðrétt hækkun 470
m ?Upp frá skála í Landmannalaugum (75 gistirými, GPS 63°59.600 -
19°03.660) liggur leiðin yfir úfið Laugahraunið, síðan upp eftir hlíðum
Brennisteinsöldu og inn á hásléttuna. Litadýrðin á þessum slóðum er
ólýsanleg. Landið er einnig mjög sundurskorið. Eftir 3 - 4 tíma göngu
er komið að Stórahver. Leiðin frá Stórahver og upp í Höskuldsskála (36
gistirými, GPS 63°55.840 - 19°09.700) er í flestum árum undir snjó.
Þegar komið er upp í skarðið á milli Hrafntinnuskers og Söðuls blasir
skálinn við. Við höfum einnig útsýni til Kaldaklofsfjalla með
Háskerðing hæstan fjalla. Svæðið er mjög þokugjarnt og því rétt að fara
varlega þótt leiðin sé stikuð. Enginn, sem gistir Hrafntinnusker ætti
að láta hjá líða að ganga vestur að Íshellunum, sem eru u.þ.b. 1,5 km
frá skálanum.
Dagur
2 föstudagur 11/18 júlí ræs klukkan 07:30. Morgunmatur gerum nesti
klárt. Leggjum af stað klukkan 09:00. Metum það hvort við förum að
Íshellum ef við gerðum það ekki daginn áður. Komum í Álftavatn klukkan
14:00. Skoðum það hvort við viljum ganga á Háskerðing sem er hæsta
fjall á þessari leið. Þegar við komum að Álftavatni tjöldum við og fáum
okkur létta næringu. Klukkan 18:00 kvöldmatur. 21:00 kvöldvaka og svefn
klukkan 23:00.
Upplýsingar frá Ferðafélagi Íslands um gönguleiðina:2. áfangi: Hrafntinnusker - Álftavatn?Vegalengd 12 km?Áætlaður göngutími 4-5 klst?Lóðrétt lækkun 490
m?Í Hrafntinnuskeri blasa við okkur gróðurvana fjöll og jöklar, ekki
sérlega hlýlegt en ægifagurt. Fyrst liggur leið okkar meðfram hlíðum
Reykjafjalla. Um er að ræða dalbotn með nokkrum giljum, sem ber að fara
yfir með gát því oft eru þau hálffull af snjó. Við erum nú stödd við
rætur Kaldaklofsfjalla. Ef veður er gott er sjálfsagt að ganga á
Háskerðing, en hann er hæsta fjall á þessum slóðum, 1281 m.y.s. Óvíða á
Íslandi er útsýni jafnfagurt og fjölbreytilegt og af tindi þessa
fjalls. Framundan eru nokkur gil, uns komið er á brún Jökultungna. Að
baki eru gróðurvana, litrík líparítfjöll en framundan eru dökk
móbergsfjöll og jöklar. Einnig eykst gróður til muna. Leiðin niður
Jökultungurnar er talsvert brött. Neðst í þeim, á bökkum
Grashagakvíslar, er ákaflega vinaleg gróðurvin, þar sem sjálfsagt er að
stansa. Þaðan suður að Álftavatni er gengið í sléttlendi. Skálarnir
tveir standa norðan vatnsins. (58 gistirými, GPS 63°51.470 - 19°13.640)
Dagur
3 laugardagur 12/19. júlí ræs klukkan 07:30. Morgunmatur gerum nesti
klárt. Leggjum af stað klukkan 09:00. Á þessari leið þarf að vaða yfir
2 ár og þurfum að taka með búnað til þess. Aðeins lengri ganga og komum
í Emstrur (Botnar) klukkan 16:30 tjöldum og útbúum kvöldmat kl 18:00.
Förum í kvöldgöngu ef veður er gott að Markarfljótsgljúfri. Kvöldvaka
og svefn klukkan 23:00.
Upplýsingar frá Ferðafélagi Íslands um gönguleiðina:3. áfangi: Álftavatn-Emstrur (Botnar)?Vegalengd 15 km?Áætlaður göngutími 6-7 klst?Lóðrétt lækkun 40
m?Fyrst er gengið yfir Brattháls og austur í Hvanngil. Vaða þarf
Bratthálskvísl. Af hálsinum ofan Hvanngils er ákaflega fagurt yfir að
líta. Þar eru tvö hús; gangnamannaskáli, reistur 1963 og aðstaða fyrir
ferðafólk sem Rangvellingar reistu 1995 en nú er aðstaðan í eigu FÍ.
Frá áningarstað í Hvanngili er fljótlega komið að Kaldaklofskvísl. Á
henni er göngubrú. Austan kvíslar skiptast leiðir, annars vegar austur
Mælifellssand (F 210) og hins vegar suður Emstrur (F 261), þangað sem
leið okkar liggur. Innan við kílómetra frá Kaldaklofskvísl þarf að vaða
aðra á, Bláfjallakvísl. Eftir u.þ.b. 4 km göngu er komið að
Nyrðri-Emstruá. Brú var byggð yfir hana 1975. Framundan eru
Útigönguhöfðar tveir. Á milli þeirra liggur leið okkar. Nú líður ekki á
löngu þar til við stöndum á brúninni ofan skálans í Botnum. (40
gistirými, GPS 63°45.980 - 19°22.480) Upplögð kvöldganga er vestur í
Markarfljótsgljúfur.
Dagur
4 sunnudagur 13/20 júlí ræs klukkan 07:30. Morgunmatur gerum nesti
klárt. Leggjum af stað klukkan 09:00. Þurfum að vaða 1 á og ganga
brattan krákustíg sem fara þarf varlega. Komum í Þórsmörk klukkan
16:30. Tjaldað og svo gert klárt fyrir grill klukkan 18:00. Kvöldvaka
klukkan 21:00 og svefn klukkan 23:00.
Upplýsingar frá Ferðafélagi Íslands um gönguleiðirnar: 4. áfangi: Emstrur (Botnar) - Þórsmörk?Vegalengd15 km?Áætlaður göngutími 6-7 klst?Lóðrétt lækkun 300
m?Þar sem Syðri-Emstruárgljúfrið nær langleiðina inn að Entujökli
verðum við að byrja á því að taka á okkur talsverðan krók áður en hin
eiginlega ganga suður Almenninga hefst. Brattur krákustígur er niður að
göngubrúnni á Syðri-Emstruánni. Farið varlega. Við ármótin á
Markarfljóti og Syðri-Emstruá er sjálfsagt að ganga fram á
gljúfurbarminn. Nú hefst hin eiginlega ganga suður Almenninga. Land
breytist þegar komið er fram í Úthólma suður við Ljósá. Þar rennur áin
í fallegu gljúfri sem víða er vaxið birki og blómum. Sunnan Kápu er
Þröngá næst okkur. Hana verðum að vaða. Sjálfsagt er að ganga hönd í
hönd og hleypa undan straumi. Þröngá skilur á milli Þórsmerkur og
Almenninga. Þaðan er rúmlega 30 mín. gangur suður í Skagfjörðsskála í
Langadal á Þórsmörk. (75 gistirými, GPS 63°40.960 - 19°30.890) Síðasti
spölurinn er skemmtilegur, enda hlýleg tilbreyting að ganga í skóglendi
eftir gróðursnautt hálendið, sem nú er að baki.
Dagur
5 mánudagur 14/21 júlí ræs klukkan 06:30 frágangur og morgunmatur.
Brottför klukkan 08:30 úr Þórsmörk og komið á BSÍ klukkan 11:30.
Ef þið hafið spurningar sendið póst á ivarisak@gmail.com eða hringið í gsm 849 8182.